Ađalvalmynd

Könnun

Ugla?

Myndir

Bloggarar

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

hehe ekki eins dugleg að blogga og ég ætlaði mér að vera:P

En af mér er svosem allt ágætt að frétta.. búin að vera að vinna alla vikuna.. mán-lau.. í vinnunni gengur allt æðislega... erum búin að fá mjög fínan yfirmann sem er mjög ungur eða 4 árum eldri en ég og algjör snillingur:) í byrjun september held ég, þá byrja ég að vinna í fullri vinnu sem verður mjög fínt.. hann er að láta mig fá meir og meir ábyrgð núna og er ég farin að sjá um að panta vörur í búðina.. eða brauð og allar kælivörur.. mér finnst það mjög gaman þar sem ég fæ að ráða öllu sjálf og get pantað það sem ég vil :) Svo fös í síðustu viku og man í þessari viku þá var ég yfirmaður.. svo verð ég það alltaf þegar hann er í fríi :) finnst mjög gaman að fá svona mikla ábyrgð :)

Var á Ísl í byrjun júlí í eina viku og var það sko algjört æði.. tíminn flaug en náði samt að gera ótrúlega mikið þó ég hafi ekki náð að gera allt sem ég vildi.. hitti fjölsk og vini sem er náttlega alltaf æði.. já.. hitti ættingja frá USA.. fór út að borða með fullt af ættingjum sem ég hitti næstum aldrei.. fór á djamm í kef sem var bara gaman.. verslaði mér pínu föt.. fór í klippingu og  hitti vini og svona... hefði viljað vera lengur en gat það ekki vegna vinnu og peninga...

En síðustu helgi gerðust 2 hræðilegir atburðir.. á rokk hátíð í kvinesdal dóu maður og kona úr eitrun í rútu.. þau eiga 3 lítil börn sem er ekkert smá sorglegt..  það voru fleiri fólk í þessari rútu sem lifðu af en urðu veik og komust þau öll úr lífshættu.. já lifið er sko ótrúlegt.. af öllum þeim sem voru í rútunni er alveg ótrúlegt að par með 3 lítil börn deyja og börnin verða foreldralaus en allir hinir lifa þetta af.. afhverju er lífið svona ósanngjarnt stundum? á eina vinkonu sem var með þessu fólki í rútunni en akkurat þessa nótt svaf hún í tjaldi.. ótrúlegt hvað hún hafi verið heppin ef heppin er hægt að segja.. já.. þau voru fundin lau morgun og svo á sun fæ ég að vita það að ein æðisleg stelpa sem eg var með í bekk síðasta vetur lést í hestslysi.. þessi stelpa var ótrúlega klár á hest og keppti í svona hestahrindrunarhlaupi.. hún var á æfingu í Danmörku og hesturinn hoppar aðeins of snemma.. flækir framfæturnar í hindruninni þannig að hún flýgur af baki og hesturinn dettur ofan á hana.. ofaná höfuð og brjóstkassa á meðan foreldrarnir horfa á.. hún deyr nær samstundis.. 18 ára gömul og allt lífið framundan.. vááá.. er eigilega ekki enn að ná þessu.. finnst ég hafa verið ótrúlega heppin að fá að kynnast henni þetta 1 ár sem við vorum saman í bekk.. varla hægt að finna æðislegri stelpu.. finnst þetta allt svo óraunverulegt þegar fólk er bara allt í einu tekið frá manni.. já.. afhverju fá dópistar og fólk sem er búið að eyðileggja lífið að lifa svona lengi þegar fólk sem á lítil börn eða allt lífið framundan er tekið svona snemma? er frekar ósanngjarnt og fær mann svo sannarlega til að hugsa um hversu heppinn maður er að vera á lífi.. eiga æðislegan kærasta.. fjölskyldu og vini.. maður kvartar mjög oft en svo þegar ég hugsa um það þá er ég mjög hamingjusöm.. held ég gæti ekki verið hamingjusamari.. verst er samt að maður eigi heima svo langt frá fjölsk og ekki geta verið með þeim á hverjum degi...

en já.. lífið er aldrei hægt að plana framundan því maður veit aldrei hvað getur gerst.. það eina sem maður getur gert er að gera það besta úr því sem maður hefur :)

Annars var ég hjá lungnasérfræðingi á mið.. komst að því að ég sé með astma og búin að vera það í mörg ár.. komin útskýring á það afhverju að það var alveg að fara að líða yfir mig á sumum æfingum eða bara heima þegar ég hef verið að elda og svona.. já.. komin útskýring á það afhverju það er stundum erfitt að anda.. hehe.. hef aldrei koblað þetta saman fyrr en í vetur þegar ég fór að spurja lækninn minn að þessu bara svona í ganni fyrst ég var hjá honum... hann byrjaði á því að gefa mér ventoline sem er algengast en það virkar bara ekkert á mig.. já.. hef eigilega aldrei getað hlupið úti því ég næ aldrei að anda almennilega en núna veit ég afhverju.. já er komin á töflur sem ég á að taka á hverjum degi og svo púst sem ég á að taka fyrir æfingar eða bara þegar ég þarf á þvi að halda... mjög gaman..

en annars held ég að þetta sé það sem er að frétta af mér svo hafið það sem best.. við erum heppin sem að eigum æðislegt líf eða bara erum á lífi!

PálaSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

Váá.. held að þetta sé bara met.. blogga svona oft;)

En héðan er allt frábært að frétta eins og vanalega.. á alltaf jafn frábæran kærasta sem ég elska alveg ótrúlega mikið.. hann er ekkert smá duglegur við að hjálpa mér við allt án þess að kvarta mikið.. bara æði! Hann er búinn að vera að vinna og vinna núna.. búinn að vera að vinna 12-14 tíma næturvinnu ekkert smá duglegur.. svo síðasta mán var hann búinn að vera að vinna alla vikuna á undan plús helgina og var á leiðinni heim úr vinnu þegar hann hringir í mig og spyr hvenær ég sé búin í skólanum.. var þá á leiðinni heim og hann spurði hvort ég vildi ekki fara með honum niðrí bæ að borða.. ég sagði auðvitað jú og þegar ég kem heim þá segir hann mér að hann sé búinn að panta borð á uppáhalds veitingastaðnum mínum.. mjög flott steikarhús! Hann ákvað þá bara að taka sér frí til næstu nótt til að vera aðeins með mér og bjóða mér út að borða þar sem ég var ekkert búin að kvarta yfir hversu mikið hann væri búinn að vinna ( get það náttlega ekki þegar hann er að vinna til að borga allt fyrir mig:/:P ).. bara æði sko...

en ja.. nóg um það.. annars er fer að styttast í að öll prófin byrji:/ verður reyndar rólegt hjá mér 2 síðustu vikurnar í apríl þar sem ég hef bara 3 skóladaga:D eða 2 prófdaga og 1 skóladag:P verður frekar nice.. þarf samt að reyna að finna eitthvern sem er góður í stærðfræði þar sem ég er ekki alveg að skilja allt... annars er ég að fara í 3 próf núna í vikunni.. norsku á þri, bóklegt í körfubolta á mið og svo Sögu á fim.. plús að ég er að vinna þri og mið kvöld eftir skóla... þarf að lesa á morgun í sögu.. reyni svo að lesa í norskunni á mán þar sem við þurfum að kunna söguna á bakvið norska málið.. jeyjj.. en sem betur fer er það ekki svo erfitt og frekar lítið að lesa þar sem við erum búin að fara í gegnum flest allt í skólanum síðustu daga.. reyndar það eina sem ég er búin að læra í norsku þetta árið! en annars held eg að ég hafi þetta alveg af.. verður mjög gott að fara svo loksins í sumar"frí"..

búin að vera að hugsa mikið síðustu daga hvað ég eigi að gera á næsta ári.. hvort ég eigi að klára síðasta árið eða taka 1 ár frí og vinna og taka svo síðasta árið.. plús og mínus við báða möguleikana... ef ég held áfram í skóla í haust þá verð ég búin með framhaldsskólann vor 2009. En þarf að lifa með þvílíkt samviskubit 1 ár í viðbót yfir að þurfa að láta TE borga ALLT eða spurja mö og pa um pening.. er búin að vera með þvílíkt samviskubit og það er ekki gaman..
Ef ég vinn í 1 ár og klára síðan skólann þá fæ ég mjög líklega styrk og lán fyrir skólann sem að gerir lífið mitt hundrað sinnum léttara.. fengi lán til að borga skólann plús að ég fengi styrk og lán til að lifa.. fengi um 30-40 þús í mánuði sem að gerir það aðeins auðveldara að lifa. En ég veit ekki.. þarf að hugsa þetta soldið betur og athuga valmöguleika mína...

jæja.. held að ég ætti bara að fara að sofa.. alein í rúminu.. kallinn á næturvakt eins og vanalega:P nei síðasta næturvaktin í bili.. svo byrjar hann að vinna að degi til á mán:) en já..

l8erSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

jæja.. skrifa svona einu sinni á 3 mánaða fresti:p en annars er bara allt gott að frétta hér úr Noreginni:) nóg að ger eins og alltaf:) skólinn gengur ágætlega og vinnan gengur sinn vana gang.. semsagt nóg að gera:)

Íslandsferðin var algjört æði:) náði að hitta mjög marga sem var æði... kíkti norður sem var sko algjört æði.. hefði samt viljað vera lengur þar.. var svo mikið með lil sys enda er hún algjört æði.. sakna hennar ýkt... svo reyndi ég að vera dugleg að hjálpa Jónu minni sem er veik greyið:( en þetta fer sem betur fer allt að lagast.. vildi bara óska að maður hefði getað gert meir.. ekki verið svona langt í burtu á meðan hún er að ganga í gegnum þeta allt saman:(

en annars er körfuboltatímabilið búið.. enduðum í 4 sæti í 1 deild sem er svosem ágætt miðað við hvernig tímabilið hefur verið.. enginn þjálfari eða neitt og allir með sínar meiningar og vesen.. hefðum vel getað unnið seríuna ef við hefðum bara haft þjálfara til að setja almennilegar æfingar og þá hefði þetta verið meir alvara hjá okkur.. en við getum samt komist upp í úrvalsdeildina þar sem það eru bara b og c lið fyrir ofan okkur.. finnst það frekar fyndið:D
vona að það verði meir alvara í þessu hjá okkur á næsta ári því annars er ég að spá í að skipta um lið.. nenni ekki að spila aftur ef þetta verður svona...

annars gengur sambúðin bara mjög vel hjá okkur:) erum reyndar alltaf að vinna.. hef eigilega ekkert séð hann núna alla vikuna þvi ég er búin að vera að vinna strax eftir skóla og svo núna þegar eg er loksins í fríi þá er hann á kafi í vinnu.. er að vinna til 3 í dag svo fer hann að sofa því hann fer aftur að vinna í nótt.. en hann ætlar samt að bjóða mér í Cirkus á mánudaginn sagði hann.. sjá fíla og svona haahhaha:D en já.. núna er ég komin í páskafrí og ætla að njóta þess:) þarf samt að vinna pínu:P

en já.. hef ekki meir að segja í bili nema það styttist óðum í afmælið mitt:D verð bráðum 20:)))

l8erSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

jæja.. nú er sko aldeilis lengi síðan ég bloggaði síðast.. hef bara ekki nennt því og á líklegast ekki eftir að nenna því nema láta vita kannski að ég sé á lífi svona annaðslagið:P

annars er allt bara frábært að frétta úr Noreginni.. lífið bara þvílíkt yndislget og alltaf þegar ég hugsa að ég gæti bara ekki haft það betra með Tom Even þá ótrúlegt en satt  verður það bara betra og betra:)

ætla bara að skrifa nokkra punkta yfir hvað hefur gerst í mínu lífi árið 2007 þar sem það er nú komið nýtt ár:)

..Fluttum á milli íbúða
..Fengum loksins okkar eigin íbúð í feb
..Komum til Ísl í fermingu hjá lil sys
..Endalaus vinna
..Æðisleg Tyrklandsferð með kallinum þar sem við hittum Einar bróðir og fjölskylduna hans
..Ég byrjaði loksins í skóla sem ég náði að halda mér í:D það gengur bara ágætlega
..Fékk mö, pa og lil sys í heimsókn
..Íslandsferð fyrir jól
..Prófaði Norsk jól sem var bara mjög fínt.. fékk endalaust flott í jólagjöf og hef sjaldnar verið sáttari:)
..Eldaði hangikjöt í fyrsta skipti og bauð tengdó í ísl jólamat:)
..Kallinn bauð mér uppá 2 hótelnætur á 5 stjörnu hóteli um áramótin þar sem við fengum flottustu svítuna á business class.. hótelherbergið var stærri en íbúðin okkar! Yndislegt alveg:)

Já... Þetta var 2007 í stuttu máli.. hlakka svo til að fá fleiri æðisleg ár með kallinum mínum:) er að koma til Ísl í 2 vikur í feb.. kem 10 og fer heim 22:)

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

hæhæ:) vááá þetta eru sko þvílík framför;) blogg aftur.. en núna er ég búin með fyrstu vikuna í skólanum og er þetta bara mjög fínt.. finnst það frekar gott að vera byrjuð í skóla aftur:) allt virkar mjög skemmtilegt.. kennararnir eru mjög fínir og er ég bara frekar sátt... erum samt ennþá að bíða eftir bókum.. fáum bækurnar lánaðar frá skólanum þannig ég þarf ekki að kaupa sem er mjög fínt:)

annars var nóg að gera um helgina... Tom Even varð 24 á lau þannig að við buðum eitthverju fólki heim fös kvöld og var mikið drukkið... ég drakk samt ekkert eigilega.. fór bara að sofa þegar allir fóru niðrí bæ.. svo þurftum við að vakna snemma á lau því við vorum að fara á námskeið.. hann á dómaranámsskeið og ég á námsskeið sem heitir aktivitetslederkurs.. veit eigilega ekki alveg hvernig ég á að þýða það en þetta er fyrsta námskeiðið sem þú tekur til að verða þjálfari... tek svo annað námsskeið í janúar sem heitir þjálfari 1 og þá á ég eftir þjálfari 2... já.. þannig að það er spurning hvort maður skelli sér svo ekki í að þjálfa eitthverntímann... var boðið það í ár en ég vildi það ekki... hef alveg nóg með skólann, vinnuna og æfingar sjálf.. svo eftir námskeiðið á lau fór ég beint í vinnu og svo var okkur boðið í mat til mömmu hans um kvöldið þar sem hann átti afmæli.. svo á sun var aftur námskeið frá 10-17.. nóg að gera...

þar sem ég er svo fátæk núna og fæ ekki laun fyrr en á fös þá ætla ég mér að bjóða kallinum út að borða og svo kaupa afmælisgjöf handa honum þá:) hafa kósý kvöld og svona:) já..

en jæja.. ég hef bara ekkert meir að segja þannig þangað til næst...

l8erSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

jæja.. þá er ég loksins að geta og nenna að blogga:) sumarið er bara búið og ég byrjuð í skólanum.. já.. búinn að mæta í 2 daga í skólann og virkar þetta allt samanút fyrir að vera mjög skemmtilegt.. stundaskráin mín er bara nice og bekkurinn mjög skemmtilgur held ég:)

annars hef ég ekki gert mikið í sumar.. bara unnið og unnið... tók reyndar 2 vikna frí og ferðaðist til Tyrklands..  þessi ferð var bara algjört æði og langaði mig sko ekkert að fara heim... ferðin byrjaði með því að við tókum rútu á miðvikudegi til Bergen og gistum þar eina nótt þar sem við flugum þaðan.. við fórum á stað sem heitir Aquariet ( eða fiskabúrið á góðri íslensku).. þar voru allskonar fiskar og dýr.. eðlur, krókódílar, slöngur og svona... en það sem mér fannst fyndnast voru mörgæsirnar... dýrka mörgæsir:D svo fórum við bara út að borða og skoðuðum aðeins í bænum og svona með frænda Tom Even.. svo fóru þeir strákarnir í bíó um kvöldið en ég nennti ekki með og fór bara að sofa...

svo vöknuðum við á fimmtudeginum og þurftum að gera okkur tilbúin að fara.. ferðin gekk bara mjög vel fyrir sig og náði ég að sofna pínu á leiðinni:) við lentum í Dalaman og þurftum að taka 2 tíma rútu til Marmaris.. þegar við komum á hótelið vorum við svo heppin að byrja á tyrknesku kvöldi.. við tékkuðum inn og fórum svo strax niður að borða og svona... svo lögðum við okkur bara snemma enda þreytt eftir ferðalagið...

á föstudeginum byrjuðum við bara á því að fara í Tyrkneskt bað.. við gleymdum að stilla klukkuna okkar á tyrkneskan tíma þannig að þegar að klukkan var 8 á norskum tíma var klukkan 9 á tyrkneskum þannig að við þurftum að hlaupa út til að ná rútunni til baðsins án þess að borða... þar byrjuðum við svo í sauna.. og ég get sko alls ekki verið mikið þar inni vegna hitans og þungs lofts... það gekk ágætlega og svo fórum við í annað svona tyrkneskt gufubað.. fannst tímanum líða soldið seint þar inni og mér byrjaði að líða illa.. svo var byrjað að skrúbba okkur og loksins fékk ég að fara út.. um leið og ég fór út satt ég mig niður og sat þar örugglega í 10 mín korter.. svo stóð ég upp oog ætlaði að labba lengra inn til að fá mér að drekka en nei... þá leið yfir mig.. var soldið fyndið þar sem 1 náði að grípa mig og svo komu 3 menn að hjálpa mér, lögðu mig niður á stóla tróðu sykurmola upp í mig og létu mig drekka kalt vatn og allt þetta  á meðan ég sá bara svart.. en svo leið það yfir og við fórum upp í æðislegt nudd og andlitshreinsun.. bara æði:D svo restina af deginum eyddum við bara á ströndinni og skoða okkur aðeins um í Marmaris:)

á laugardeginum fórum við að kafa.. það var bara æði.. eyddum mestum parti af deginum í það.. fyrst þurftum við að prófa allt dæmið og sjá hvort við önduðum ekki rétt og svona.. svo fengum við að kafa dýpra og fengum við TE að kafa pínu sjálf:) mjög gaman..

sunnudagurinn fór bara í chill og mánudagurinn eigilega líka.. nema um kvöldið fórum við á svona alvöru Tyrkneskt kvöld.. þar var allskonar tyrkneskur matur og allt frítt að drekka.. þar voru allskonar þjóðdansar, magadansarar og svona eldgaur.. þetta var ekkert smá flott allt saman:) á þriðjudeginum fórum við í svona all inclusive lazy day cruise.. þar lágum við bara í sólbaði á bát og skoðuðum allskonar staði.. ég var pínu óheppin að vera illt a maganum og eyddi miklum tima á klóstinu...

á miðvikudeginum fórum við til Pamukkale.. það er svona kalk fjall ekkert smá flott.. ferðin tók sinn tíma en það voru 3 tímar að keyra... í lítilli rútu sem var pakkfull og við sátum aftast í þröngum og ógeðslegum sætum þar sem loftkælingin virkaði ekki svo gott heldur.. en þessi ferð var samt algjört æði:) við stoppuðum í teppaverksmiju þar sem búið er til allskonar teppi.. dýrustu og bestu teppin voru úr silki.. þar sem þetta er allt handunnið getur það tekið um 1ár að gera 1 fermeter á bestu gæðum.. gæti  aldrei gert þetta.. svo komum við til Pamukkale og vorum þar í um 2 tíma og skoða þarna.. svo fórum við heim og stoppuðum í svona steinverksmiðju þar sem þeir bjóu til allskonar hluti úr onyx... margt af því var mjög flott..

fimmtudeginum eyddum við bara í chill og á föstudeginum fórum við í vatnagarð... það var bara mjög fínt... svo á laugardeginum hittum við loksins Einar, Þóru og Halldóruna mína:) það var sko algjört æði:)) tókum bara chill dag á ströndinni og labba um Marmaris.. á sunnudeginum fórum við í svona jeppasafarí.. það  var ekkert smá gaman... fullt af jeppum og allir með vatnsbyssur og í stríði.. jeppar á mótu jeppum... ekkert smá gaman.. óhætt að segja að við blotnuðum soldið mikið:P þar skoðuðum við marga flotta staði:) og var ferðin bara algjört æði:)

mánudeginum var bara eytt við sundlaugina á hótelinu hjá Einar og Þóru.. svo á þriðjudeginum tókum við Halldóru og leyfðum Einari og Þóru að fá 1 sólarhring saman... við fórum bara með hana á ströndina og í sundlaugina sem var rétt hjá hótelinu okkar:) hun skemmti sér alveg konunglega.. enda algjört æði þessi stelpa:)) svo á miðvikudeginum fórum við til Dalyan og skoða skjaldbökuströndina... bátferðin var alltof löng á leiðinni til strandarinnar en ströndin var sko algjört æði:) ferskt vatn á 1 hliðinni og sjór á hinni.. mjög sniðugt:)

en þetta var því miður síðasti dagurinn okkar og þurftum við svo að fara í rútu klukkan 3 um nóttina.. já.. þá tók 16 tíma löööööng ferð heim.. ég svaf sem betur fer mestan partinn af ferðinni en samt leiðinlegt.. svo er ég bara búin að vera að vinna síðan ég kom heim... hef ekki haft svo mikinn tíma til að gera neitt en er loksins í helgarfríi núna þannig að eg er búin að setja inn myndir og blogga.. loksins;)

en jæja.. þetta er sko laaangt blogg en ætla að reyna að vera duglegri núna meðan ég er í skólanum og svona:)

l8er
PálaSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

hæhæ:)

af mér er allt frábært að frétta... búin að vera að vinna eins og vanalega... annars er sko búið að vera æði veður... upp undir 30 stig í dag... næstum of heitt til að vera úti... lá soldið í sólbaði heima í dag en hefði sko miklu frekar hafa viljað vera á ströndinni... þá hefði maður geta kælt sig aðeins í sjónum því það var varla hægt að liggja lengi í einu... meira að segja Tom Even fannst þetta vera einum of heitt og þá er mikið sagt:P er ekki annars fínt veður á Íslandi?;) híhí...

annars hef ég voðalítið að segja... mánuður í Tyrklandsferðina... styttist og styttist:) á morgun ætla ég að kíkja á tónleika að degi til og kannski eitthvað djamm annaðkvöld... heyra betur í henni Hildi minni sem er loksins flutt tilbaka... kominn tími til.. þýðir ekkert að búa á Ísl... allavega ekki eftir að maður hafi búið hér:P

er alltaf jafn hamingjusöm.. á yndislegasta kærasta í heimi og gæti bara ekki haft það betra... jæja.. orðið fínt.. ákvað bara svona að láta ykkur á Ísl vita hversu gott veður er hérna;)

l8erSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

hæhæ:)
ótrúlegt en satt þá er ég að blogga aftur.. og það er ekki liðinn mánuður síðan ég bloggaði síðast:) annars hlakkar mér alltaf jafn mikið til Tyrklands.. bara bíð.. eða vinn og vinn:P

hef voða lítið að segja svosem... var að sækja um skóla sem að mig langar klikkað að fara í... hann heitir Wang toppidrett.. virkar ótrúlega spennandi:) var reyndar soldið sein að sækja um en það er spurning hvort það séu ekki eitthverjir sem gleyma eða vilja ekki borga skólagjöld... þannig að það er smá möguleiki... þessi skóli er þannig að ég mæti kl 8 á körfuboltaæfingu sem er í ca 2 tíma eða svo.. þá er ég vöknuð og ekkert smá hress þegar loksins kemur að skólanum.. svo bara læri ég þetta venjulega... svo EF ég kemst inn... þá fer ég í körfuboltabúðir í New York í nóvember þar sem verður spilað körfubolta og farið á NBA leik... væri sko ekkert á móti því.. svo fæ ég íþróttaföt og töskur frá skólanum og svona... ohh.. er buin að vera að deyja síðustu daga því mig langar svo... ef ég kemst ekki inn núna þá kem sæki ég bara um á réttum tíma á næsta ári.. þá kemst ég pottþétt inn því körfuboltaþjálfarinn í skólanum vill fá mig inn.. þannig að það eru kannski pínu líkur að ég komist inn í ár:P en samt spurning..

annars hef ég bara verið að vinna og svo í gær var þjóðhátíðardagur Norsara en Tom Even var að vinna þannig ég skellti mér bara til Gausel.. var þar í allan gær og fékk rosagóðan mat og kökur:)) svo gisti ég þar líka þar sem kallinn var svo að vinna í nótt líka... svo er ég bara að passa strákana núna:) þeir eru svo sætir:)

annars held ég að þetta sé komið ágætt í bili þannig þangað til næst..

L8erSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

halló:)
sýndist eitthverjir (Jóna) vera að væla um blogg.. hmm.... já Jóna... bara fyrir þig... svo þú hafir nú eitthvað að gera á daginn;) vandamálið er samt að ég hef voða lítið til að blogga um...

hef bara verið að vinna á fullu síðan ég kom frá Ísl sem verða 3 vikur á mán... er búin að vinna alla daga nema sunnudaga... búin að taka nokkra daga frá 8 til hálf 10 um kvöldið... verður ágætt að fá peningana fyrir þetta... kannski verst að ég er búin að eyða þeim öllum áður en ég fæ þá:P

annars svona á milli þess sem ég er að vinna er ég bara búin að vera að njóta lífsins með kallinum... fara út og fá okkur eitt glas vín eða  bjóra og slappa af.. eða fara á ókeypis taco hlaðborð á einum skemmtistað sem hann vinnur stundum sem dyravörður á eða ókeypis í Havanna... hehe.. erum VIP allsstaðar þannig að við fáum ókeypis eða mjög góðan "deal" á öllum stöðum:D

svo erum búin að panta okkur ferð til Tyrklands núna:) 2 vikur í marmaris og förum 12 júlí... verður yndislegt:) ætla að reyna að vinna eins mikið og ég get þangað til og eftir að ég kem heim til að fá smá money... elska peninga... eða eyða þeim allavega.... veit að kallinum finnst ekkert jafn skemmtilegt og mér að ég sé að eyða þeim:S:P en það er svona:) hlakka þvílíkt til að fara til Tyrklands... verður fyrsta sólarlandaferðin mín:P híhí.. svo þegar við erum búin að vera ein í viku þá koma Einar, Þóra og Halldóra Björg líka þannig að við verðum eitthvað með þeim líka... verður bara yndislegt!:)

svo á mið er okkur boðið í grill og svona... verður æði:) nefnilega þjóðhátíðardagur Norsaranna 17 maí þannig ég þarf ekkert að vinna þá:) gleymi sko ekki síðasta 17 maí með Tótu hehe.. stóðum úti í GRENJANDI rigningu vægast sagt bara til að fylgjast með og sjá hvernig norsararnir fögnuðu þessu hehe... mun sko ekki gleyma því... Tóta.. ég kem til að sakna þín í ár;)

annars held ég að ég hafi bara ekkert meir að segja nema lífið er sko bara yndislegt... frábært í báðum vinnunum og allt æðislegt hér heima:)

l8erSvalur

...Pála Ólöf Júlíusdóttir

halló... held að síðan hérna sé bara gjörsamlega að deyja út... allavega er ég ekki mikið að nenna þessu:S eitthver sjálfboðaliði?

annars er bara allt flott að frétta:) er náttlega alltaf jafn hamingjusöm og ánægð yfir að búa hérna í þessu frábæra landi og náttlega með mínum frábæra sambýlismanni:) annars er Íslandsferðin yfir og var hún bara mjög fín.... mamma og lil sys fengu sko fullt að flottum gjöfum... váá hvað ég væri til í að fermast aftur:P

annars er bara voða lítið að frétta.. gerist ekki mikið merkilegt í mínu lífi hérna... reyni bara að vinna sem mest eða vera heima og kúra með kallinum:) yndislegt líf.... var að komast að því þegar ég var á Ísl hvað mér fyndist gaman í vinnunni minni.... ótrúlegt en satt þá líkar mér mjög vel að vinna í þessari búð sem ég vinn í... hlakkaði sko ýkt mikið að komast heim og vinna:P er að vinna með svo frábæru fólki og svo eru eigilega bara fasta kúnnar sem að maður er byrjaður að þekkja ágætlega og spjallar alveg heilan helling við... dagurinn er ekki sá samur án þeirra... fæ fráhvarfseinkenni:P svo er einn gamall kall sem kemur stundum og hann er sko besti vinur minn:) alltaf að segja honum eitthvað á Íslensku og hann er alltaf að reyna að prófa en svo gefst hann alltaf upp:) bara æði... svi minnir hann mig svo oft á Einar afa heitinn sem gerir þetta bara enn betra:) já.... fékk líka að vita um daginn að hann væri 93 ára... hefði aldrei dottið það í hug.... var ekki búinn að sjá hann í mánuð en svo kemur hann til mín núna í vikunni svo glaður að sjá mig og spyr hvernig það hafi verið á ´sl... hann man sko allt:) ekkert smá duglegur:P

annars hef ég frá voða litlu að segja akkurat núna... en þangað til næst...

L8erSvalur

Síđa 1 af 6

Auglýsing

Prófíll

Innskráningar kubbur

Teljari